fúúúúútbollll!

það er ekki það að ég sé á kafi í að horfa á boltann og drekka bjór, nei aldeilis ekki, hér á þessari eyju fær maður ekki að gera margt án þess að borga fyrir það á einn eða annann máta. Þar sem ég er ekki með SÝN þá get ég alls ekki horft á leiki í HM. Boðið vinum mínum og tekið þátt í stemmningunni, nei ég fer bara á heimasíðu keppninnar Og þar við situr. En ég viðurkenni að ég sakna þess að geta ekki tekið þátt, en það er ekki séns að ég láti undan þessu einokunarvaldi og kaupi mig inn á það. Tek bara þátt á minn hátt. Set inn myndir af og til. Sé til hvort ég meldi mig ekki eitthvert á úrslitaleikinn og fagni með sigurvegurum...
