Jæja...


Já þetta voru hreint frábærir tónleikar hjá BUBBA 06 06 06.
Jafnvel í gegnum sjónvarpið upplifði maður soldið stemmninguna...
Hér skemmtum við okkur nokkuð vel heima í stofu á vesturgötunni.
Fékk gæsahúð þegar BUBBI tók "Rómeó og Júlía" og allir tóku undir, ég meina allir í Höllinni sko að kalla nafn mitt, fegin var ég gær að heita ekki Gústa eða eitthvað annað, bara í gærkveldi, á því augnablikinu...
Já Þakka ég BUBBA og öllum mínum vinum fyrir ánægjulega samveru. J.
